7.5.2008 | 18:52
Bryllup bryllup...
Nú líður að þessu brúðkaupi... bara 61 daqur í þetta. Ég er búin að skipuleggja borgarferðina í þaula. Þar sem Jónsi verður fjarri góðu gamni og verður fastur í rútu með eintómum gelgjum í skólaferðalagi fer ég ein með börnin og hundinn keyrandi. Við komum í siðmenninguna þann sextánda og ráðstefnan er daginn eftir og svo er það sunnudagur til sælu. Á mánudag er það síðan dýralæknirinn og kjólamátun, þriðjudagurinn fer í matseðlatékk og verðið staðfest, miðvikudagurinn í rólegheit og kökutékk og þessu verður síðan slúttað með fundi um kvöldið. Brunað heim til að halda Júróvísjónpartý!!
Mikið rosalega þætti mér vænt um að þeir sem fengu boðskort og/eða lesa þetta blogg myndu hringja í mig og svara þar sem ég þarf helst að hafa tölu yfir gestina þegar ég fer yfir matseðla/verð með veisluþjónustunni á þriðjudaginn 20. maí.
Athugasemdir
Ég hringi á morgun. kv. frá Ísafirði
Ella frænka (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 23:21
Ella frænka!!! Þetta símtal vermdi mér um hjartaræturnar!!!
Huldabeib, 8.5.2008 kl. 23:18
Ég þarf víst að afbóka mig og stórfjölskylduna :(
En ég skal vera með í anda ;)
barbara og félagar... (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 00:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.