9.6.2008 | 21:06
27 dagar og telur
Það styttist í brúðkaupið... Núna er ég með mestar áhyggjur af peningum fyrir herlegheitunum og svo brúðarvendinum og kökunni. Peningamálin reddast en verra er með vöndinn og kökuna. Það er valkvíði á háu stigi hérna með vöndinn. Mamma kom með æðislega hugmynd um að vöndurinn myndi bara vera eitthvað úr náttúrunni í kring, svona í stíl við hvað allt annað er spes... En ég held að mamma sé að gleyma einu ; Ég er kvíðasjúklingur og þarf að hafa það pottþétt!! Ég get ekki stólað á það að finna eitthvað í náttúrunni á brúðkaupsdaginn sjálfan, mér finnst nóg að þurfa að stóla á að veðrið verði gott. En mig langar í eitthvað einfalt og stílhreint eins og t.d. þessa :
Og með kökuna. Kakan sem slík verða nokkrar litlar kökur, ég er ekki að hafa einhverja hlunktertu fyrir 75 manns í einu lagi sko! Og þar sem ég er voða líbó á nammi leyfði ég manninum mínum tilvonandi að ráða þar þannig að það verða engar franskar súkkulaðikökur. En málið er með skreytingarnar... á að hafa dagsetninguna og nöfnin okkar á þeim eða hvað?
Athugasemdir
Bráðu frú, ég stóð í þesum sporum fyrir tæpu ári síðan,er reyndar kona með fortíð svo ég hef hreynlega gert þettatvisvar
Láttumig vita ef ég get orðið að lið, sem marggift blómaskreytir þá luma ég á ýmsu
ég á líka ótrúlegafallega danska bók sem heitir Bryllup, allveg yndislgar myndir og koma manni í jafnvægi þegar það er að sjóða uppúr af stressi, þú veist hvar þú fnnur mig ef það er eittvað sem ég get hjálpað með
K.kv.frú,frú Anna
Anna Ólafs. (BirtuReyðarfirði) (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 21:38
Farðu nú að skrifa eitthvað svo þessar girnilegu kökur færist aðeins neðar á síðuna. Þetta er ekki hægt!
Deeza (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 19:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.