Að redda sér fyrir horn...

Tvíburunum mínum var boðið í afmæli um helgina og ég þarf varla að segja ykkur að það hafi verið fyrir mánaðarmót... Afmælisgjafir fyrir 10 ára skvísur er hausverkur. Sérstaklega þegar maður á ekki krónu. En ég reddaði mér fyrir horn. Ég var að skoða svona "altered items" á útlenska skrappspjallinu mínu og sá þar að þær eru að breyta allskonar hlutum með því að klæða í pp og skreyta... Þannig að ég ákvað að prófa það og ef vel heppnaðist værum við komnar með gjöf. Hvað finnst ykkur? Þetta var dolla undan kakó sem ég klæddi í pp og skreytti.Skreytt dós.

 

 

 

skreytt box að aftan.skreytt box að ofan.

 


Grasið er ekki alltaf grænna hinum megin.

Það er ég alveg að upplifa þessa dagana. Grasið okkar var rautt í vor og ekki falleg sjón. Við unnum mikið í því að ná því almennilegu, rifum upp alla lóðina með hrífu og vökvuðum og vökvuðum, bárum í hana blákorn og grasfræ og árangurinn er að sýna sig núna... Við erum með grænasta grasið í lengjunni... Eins og er alla vegana.

Ég er komin í sumarfrí!

Ég er komin í sumarfrí og er að fíla það í tætlur! Við leggjum af stað í ferðalagið á mánudaginn eða þriðjudaginn og ég verð að segja að ég hlakki mikið til. Okkur vantar tengdamömmubox til að geyma allan farangurinn annars erum við komin með allt annað. Mér finnst eitthvað svo rómantískt að ferðast um landið með fjölskyldunni. Að upplifa fegurð landsins með þeim sem mér þykir vænst um.

Næsta OFURfyrirsæta Íslands.

Ég er búin að vera í skrapplægð undanfarið. Ég vil kenna veðrinu um. En alla vega tókst mér að klambra saman einni síðu í dag... Er ekki alveg sátt við útkomuna en einhvern veginn verð ég að koma mér af stað. Þetta er mynd af Sesselju með sólgleraugun mín, sem ég hef ekki séð í langan tíma því einhver stelpan fékk þau lánuð án þess að biðja um leyfi.fyrirsætan

Það er komið sumar!!

Það er búið að vera yndislegt veður hérna seinustu daga og að sjálfsögðu nennir maður ekkert að hanga inni í tölvunni þegar svoleiðis er. Við erum búin að slá garðinn og bera í hann og grasið okkar er að ná eðlilegum lit að nýju (fyrir ykkur sem ekki vitið þá ákváðu þökurnar okkar að verða rauðar í vor). Og ég hlakka til að fara í sumarfrí, er farin að finna aðeins fyrir öfund út í stelpurnar mínar og Jónsa fyrir að vera byrjuð í sínu sumarfríi. Hérna eru nokkrar myndir sem ég tók um daginn þegar Jónsi sló garðinn... við lékum okkur á meðan.út um kýraugað séð... Ég fór og keypti þennan fína fína björgunarbát fyrir Litla-Karl og Sesselju til að sulla í úti í garði í sumar... Hann vakti voða lukku en þar sem Sesselja fór í hesthúsin þennan dag buðum við besta vini hans Karls í heimsókn til að vígja bátinn.Hvalaveiðar?

 

 

 

 

 

 

                                                                               


Mont mont...

Ég var beðin um að gera hina árlegu gjöf til Þórðar í Skógum fyrir 10. bekkinn í ár. Það er hefð fyrir því að þegar útskriftarferðin er farin að koma við hjá honum og færa honumFront. gjöf. Ég var búin að velta þessu lengi fyrir mér hvað í ósköpunum ég gæti gert handa honum. Svo kom minnimáttarkenndin líka við hjá mér í ferlinu því hann er víst búinn að fá mörg listaverkin frá Eskifirði. En svo ákvað ég að skrappa handa honum smá til að hengja upp á vegg eða til að stilla upp í hillu hjá sér. Keypti blindramma í Pennanum Eymundson (er það með einu eða tveimur s-um?) og hófst handa. Þetta er útkoman. Ég fékk lánaðar nokkrar myndir frá Helga Garðars þar sem hann á svo mikið af fallegum myndum frá firðinum fagra og það var erfitt að velja úr. Og ég fékk að vita það að Þórður var hinn ánægðasti með gjöfina í ár.

 from left

 

 

 


Tækifæriskort.

Þá er ég dottin í kortagírinn aftur enda ekki seinna vænna þar sem ég var orðin lens á kortum. Ég er ennþá hrifnust af svona töskukortum og þetta er aðeins öðruvísi útfærsla hjá mér þar sem hún er breiðari og styttri.Töskukort.

Hvað er scrapbooking?

Scrappbooking er einskonar minningarbókargerð... Það er að segja þú tekur myndir og "föndrar" í kringum þær sögu þeirra og minningar tengdar myndinni eða myndunum. Ég er t.d. búin að gera nokkur albúm þar sem ég tek myndir í uppáhaldi og skrappa þær. Þegar maður byrjar að skrappa til að prófa þetta föndur er gott að skipuleggja verkið fyrirfram svo það verði ekki meira um sig en maður ætlaðist til. Þegar ég byrjaði tók ég fyrsta ár yngsta barnsins fyrir og vann síðan út frá því... Síðan þá hef ég klárað fyrsta árið hans Litla-Karls en það bætist endalaust við því það eru til svo margar myndir af honum. Svo er ég byrjuð á albúmi fyrir fjölskylduna í heild sem ég sé fram á að geta átt sjálf í ellinni. En albúm barnanna eru þeirra eign þó ég tími kannski aldrei að láta þau fá þau... Svo hef ég gert eina bók fyrir litla frænda minn sem fermdist í fyrra en þá tók ég bara örfáar myndir af honum frá fæðingu upp að fermingu og skrappaði þær. Og svo er ég að vinna í albúmi fyrir vinkonu mína og dóttur hennar. Og er ég með fullt af myndum af henni, skírnarvottorðið, sjúkrahúsarmböndin og fleira skemmtilegt sem annars væri geymt í kassa niður í geymslu. En alla vega er scrappbooking nokkurn veginn þetta... Vona að þetta hafi svarað einhverjum spurningum. En endilega spyrjið ef það er eitthvað sem þið viljið vita í sambandi við þetta.


Það er komið sumar...

En það snjóar... Er það vegna þessa fyrirbæris sem Al Gore fattaði upp á og nefnist "Global warming" eða getum við kennt El Nino um þetta? Eða er þetta bara Ísland í dag? Ég alla vega er ekkert svo viss um að ég eigi að taka nagladekkin undan...

Litli-Karl

Þessa er ég búin að vera að vesinast með í tvo daga... Blómapp var afgangur þannig að ég ákvað LO-ið útfrá honum og skellti síðan röndótta pp með. litlikarlEn mér fannst það ekki koma nógu flott út þannig að ég reif það allt upp og klippti út blómin. Og svo dútlaði ég meðfram til að ramma það aðeins inn. Ég er bara nokkuð sátt við útkomuna sem er svolítið sniðugt því ég var aldrei hrifin af þessum pp en núna langar mig í allt rósótt og blóma. Enda er BG komin með svo margar línur af pp með blómum í allskonar flottum litum. Svo langar mig líka í fleiri stór blóm.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband