Ekkert uppeldi

Dísús.... Við erum með fimm börn á heimilinu en bara eitt baðherbergi. Það myndast því oft biðröð fyrir framan baðherbergishurðina. Prinsinn á heimilinu var eitthvað óþolinmóður að bíða eftir systur sinni og fór bara út í bílskúrshurð og meig út í snjóinn. Kom síðan hróðugur til baka og vildi endilega sýna mömmu. Það hlýtur bara að vera genatengt að metast um hversu langt maður pissar því ekki hef ég eða systur hans verið að metast um það við hann. Hann vildi meina að hann pissaði svo langt að það fór á bílastæðið við næsta hús!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

æjj hann er svo mikil dúlla í sér að það er ekki eðlilegt hehe :D kv metta

metta (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 11:47

2 Smámynd: Ingunn

hehehe góður   ég ætti að lána ykkur eins og annað wc herbergið mitt, nota ekki gesta nema til að safna ryki...

Ingunn , 18.11.2008 kl. 16:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband