Sæsen...

Ef ég gæti nú sagt að ég hafi ekkert sofið í nótt vegna þess að ég var að gera eitthvað skemmtilegt þá væri ég að ljúga... Ég var að lesa í rólegheitunum þegar Dagbjört kom hlaupandi og ældi út um allt baðherbergi. Þegar ég var búin að þrífa það og aðstoða hana eftir bestu getu byrjaði Kolbrún. Hún náði nú að hitta í postulínið þannig að lítið var að þrífa og þegar ég var búin að aðstoða hana byrjaði Saga... Ég er ekki dugleg í ælustandi, kúgast auðveldlega og finnst þetta hreint ógeð allt saman, hljóðið, lyktin, ælan sjálf. En ég stóð þessa vakt alein og leyfði mínum heittelskaða að sofa á sínu græna því hann er að fara að syngja á tónleikum seinnipartinn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég samhryggist þér og þínum Hulda mín.

Júlía (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 08:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband