Elsku afi minn

Hann afi minn veiktist á sunnudaginn og var sendur suður á Borgarspítala aðfaranótt mánudags. Hann fékk heilablæðingu, blessaður karlinn, og lést aðfaranótt þriðjudags 2. desember. Hann afi minn var yndislegur karl og margt gott sem ég lærði af honum. Hann var eiginlega eins og pabbi minn því ég var svo mikið hjá þeim þegar ég var að alast upp.

Ef amma Bára var eins og skjólgott tré þá var afi minn traustur klettur í mínu lífi sem ég gat alltaf stólað á.

afi og Sesselja


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Samhryggist þér ljúfan. Gangi þér vel næstu daga og alla daga.

Aprílrós, 4.12.2008 kl. 17:09

2 identicon

Sæl Hulda.Okkur Palla var brugðið, þegar við sáum lát afa þíns í blaðinu í morgun.Afi þinn var einn af þeim mönnum sem maður kynnist á lífsleiðinni,sem skilja eftir sig svo fallegar minningar.Við sendum ykkur öllum samúðarkveðjur.

Kærar kveðjur.

Margrét og Palli

Margrét (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 17:31

3 identicon

Elsku Hulda, Ég sendi innilegar samúðarkveðjur til þín og fjölskyldu þinnar, þekkjandi afa þinn veit ég að hann hefði ekki viljað vera veikur lengi, en fyrir þau sem eftir standa er þetta alltaf erfitt.

Elín Ólafsd. (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 19:49

4 identicon

ég samhryggist þér.... :(

kv metta

metta (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 14:23

5 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég samhryggist þér Hulda mín

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 8.12.2008 kl. 20:29

6 Smámynd: Ingunn

Ég samhryggist þér elsku Hulda mín  Það væri nú yndislegt að vera nær þér núna til að knúsa þig.

Ingunn , 10.12.2008 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband